
Söngur 6-12 ára haustönn 2025 (2013-2019)
- 6 - 12 ára
- 5.8.2025 - 23.9.2025
- Fákafen
LAUS PLÁSS Í SKÓLANUM 7.SEPT ERU EFTIRFARANDI:
- Börnum er raðað í hópa eftir aldri +/- 1 ár
- 5 börn í hverjum hópi nema hjá 5 ára hópum, þá eru þau 6 saman
- Nemendur sem hafa verið áður skrá sig í framhaldshóp
- Kennt er einu sinni í viku í 50 mín í senn í 12 vikur.
Hver og einn nemandi vinnur með 2-4 lög yfir önnina og endar á því að taka upp lag ásamt því að syngja á tónleikum. Unnið er með hljóðnematækni, sviðsframkomu, textaframburð, túlkun, stuðning ofl.
Frábær leið fyrir börn sem t.d. eiga erfitt með að tala fyrir framan aðra, að styrkja sig í framkomu, nú og auðvitað líka fyrir þau sem elska sviðsljósið. Söngurinn eflir sjálfstraustið! :-D
- 5-7 ára börnin eru á laugardögum milli 11 og 14 en einnig verða einhverjir tímar á virkum dögum kl 15 eða 16.
- 7-12 ára börn eru á mán-fimmt á heila tímanum frá kl 15 virka daga. Hvaða dagar og tímasetning hver aldur verður kemur í ljós þegar nær dregur en við röðum í hópa eftir öðrum stundatöflum barnanna.
*ATH*mikilvægt er að tilgreina í athugasemd hvaða dagar og tímasetningar koma ekki til greina og eins ef það eru óskadagar. Framhaldsnemendur tilgreina hvort þeir vilji halda sama hópi.
- Ef gengið er frá greiðslu fyrir 18.ágúst má skipta í 3-4 parta. Ef skráning berst eftir það er hægt að skipta í 3 parta. Ef skráning berst eftir að námskeið hefst er hægt að skipta greiðslu í 2 parta.
- Pláss er ekki tekið frá fyrr en gengið hefur verið frá greiðslu
- Ef ekki tekst að finna tíma sem hentar er námskeiðsgjald endurgreitt að fullu
- 20% staðfestingagjald fæst ekki endurgreitt eftir að tími hefur verið staðfestur, ef nemandi hættir við námskeið minna en 7 dögum áður en námskeið hefst
- Námskeiðsgjald fæst ekki endurgreitt ef nemandi hættir eftir að námskeið er hafið
Kennarar: Agnes Sólmunds, Birgitta, Elísabet Ormslev, Inga María, Íris Hólm, Íris Rós, Klara Einars, Melkorka, Sara Dís og Stefanía Svavars